nú þurfa að fara að koma myndir. Það er búið að setja flísar á baðið og nú er múrarinn minn knái að setja i sturtuna. Þvottahúsið er hálfnað, klárast í dag og ég er svo lukkuleg.
Það koma myndir þegar ég finn tíma til..
Fékk heimsókn hér um daginn sem vert er að minnast á. Sem þruma úr heiðskíru lofti var ráðist hér inn. Æskuvinkona min Olla og fjölskylda komu. Skil nú ekki hvernig fólk getur leyft sér að hrella mann með símhringingum og heimsóknum.. Mikið var nú gaman að sjá framan í þau og spjalla. Það er svo merkilegt að fólk sem er alið upp saman, sem er vant sömu hlutum og umhverfi, virðist hafa svipaðan húmor. Ég hló í heilan dag eftir að þau keyrðu, lifi reyndar enn góðu lífi því við hlógum eins og við værum í brjáluðu barnaafmæli ! Mikið er nú hollt að hlægja svona mikið og innilega. Þetta gerist ekki oft að maður hlægju af svipaðri innlifun á dönsku. Þeirra húmor er bara ekkisá sami. Ég var nú líklega orðin ör af allri íslenskunni en ji hvað það var gaman. Talað um fólk frá í gamla daga, sem ég heyri jú ekki mikið af og bara þessi tenging sem er jú til staðar.
Ég er náttúru lega hálf lömuð eftir að Harpa fór, mamma var hér á undan henni, en ég fattaði þegar Harpa fór að það er alveg rosalega gaman að hafa helvítið hana systur mína til að spjala við og deila börnum.. En Valur er að koma og þá verður sett á fullt stím áfram og á miðin skal haldið. Við munum þó ekki fiska, heldur einangra að’ utanverðu og þannig veiða hita í húsið. Ég er í bjartsýniskasti, enda á drengurinn að vinna fyrir mat sínum og húsaskjóli… er að gæla við að moka herbergið hans Bjarka út og byggja það upp á nýtt. Mig langar nú að reyna það þar sem drengurinn verður bráðum 5 ára og á nú skilið að fá almennilegt herbergi.
Já svo í framhjáhaldi, þá er ein “vinkona” mín hér sem talar um sveitasetrið sem kompu…. mig langaði bara að segja ykkur að ef þið eruð með eitthvað minna en 140 – 700 m2 þá er það ekki kompa. Er búin að vera í krampa síðan í gær. Hún hefur aldrei séð eignina en talar við aðra um kompuna mína. Þá getið þið sem vitið hvað er um að ræða hlegið með mér. >Þessi stúlka verður hér eftir kölluð skarpasta skeiðin í skúffunni.
Nú er ég farin að gera mér dælt við múrarann minn, færa honum kaffi, þeir fengu smörrebröd i gær og ég held nú bara að ég hafi fengið tvo plúsa, allavega þökkuðu þeir voiða vel fyrir sig og voru of saddir til að vinna, nei……
knús á klakann
oh hlakka ekkert smá til að sjá höllina!
Kompa!!! ????? LOL
Ekki beint fyrsta orðið sem mér dettur í hug þegar ég sé myndir af Dallasbúgarðinum þínum
En þetta er rétt hjá þér- maður hlær ekki svona mikið og innilega á dönskunni.
Knús á ykkur duglega fólk