Þetta er lesendaleikurinn.
Hversu mörg lög voru af veggfóðri á stofunni.
Nánar, á einum vegg, ekkert yfir allt og eitt á hverjum vegg, nei á einum vegg.
Nú hlakka ég til að sjá viðbrögðin og frestur er til —-áramóta—, þar sem ég mun auglýsa síðuna í jólakortunum í ár .
Sá sem tekur þátt fær að launum fría gistingu i mínu húsi að libitium. Og kannski baka ég köku.
Hlakka til að sjá hvaða skríll tekur þátt.. hlær hátt.
knús Perla
Sæl elsku Perla mín.
Það voru 15 lög á Réttarstígnum.
Nærðu því???????????????
KKK til ykkar mamma Amma
Ég er ekki að spurja um réttarstíginn mamma mín, heldur kærbyvejinn… en segi ekki aukatekið orð fyrr en síðar… knús
Ég segi 18 ………….
eða 7 …………
Oh svo gaman að þú sért komin í blogg-gírinn aftur. Er búin að sakna þín. Við erum auðvitað alltaf á leiðinni í heimsókn en bíllinn okkar er með krabba svo við komum ekki fyrir jól. Fórum með þennan fína gamla bíl á verkstæðið með smá kvef og komum út með gamlan skrjóð með lungnakrabba!! Skelfilegt.
Svo við komum ekki í heimsókn fyrr en eftir jól……………….
Svo ég verð eiginlega að krefjast þess á fá þig og KungFu Bláhærðan í heimsókn um jólin – er það sjéns?
kys og kram
Disa
Giska á 10
21 og ég vil fá appelsínugula köku !!
Ég dýrka þig sem fyrr Perla mín og dái, sakna þín og er glöð yfir að sjá þig í blogggír
Knús yfir hafið