ætlaði að sýna mikinn dugnað og blogga, en um hvað….
Hér er veðrið hið yndislegasta, snjóar pínu og frostið gerir að hann helst hvítur á köflunum sem hann myndar hér í landslaginu
Var að taka myndir af nokkrum nálapúðum og reyni nú að skella þeim inn… man ekkert hvernig þetta virkaði þetta blogg…
þessi er voða krúttlegur 6×6 cm, en hann er handsaumaður úr bútasaumsefni.
Þessi er æði, biscourno lagaður nálapúði. 8x8cm ca, bara vel heppnaður.
Þessi er alveg pínu pons ekki nema ca 3×3, en alger uppáhalds.
Þessi er saumaður úr filti og ég notaði biscourno lagið semmér finnst svo fallegt, hann er ca 4×4 cm.
þetta var sem sagt blogg um að breyta með nál og tvinna
Þetta verður það sem kemur ídag.