Bjarkinn friskur aftur
Bjarki hinn sprækasti aftur, merkilegt hvað hann tekur upp á þessu ca einu sinni á ári að fá svimandi hita í einn dag og svo bara allt í fínasta daginn eftir.
Hvaða svik eru þetta við Freyju, Dísa? Það var hún sem gerði mér ljóst að það er ekki svo mikið mál að halda hundskvikindi…
knús Perla
komment
Talvan át kommentið mitt frá því fyrr í dag. En frábært að litli víkingurinn sé svona fljótur að braggast. Alltaf sami jaxlinn þessi drengur!
Já, svik við Freyju? Sko hvítt hundspott? Freyja sá fyrir sér hávaxinn, gullfallegan súkkulaði dreng
knús að ofan
Dæz & co
- 29-07-2008 21:37 | 16 visninger | 0 kommentarer
Já trúið því eða ekki, 40 gráður á celcius hér inni úti eða undir sæng… Bjarki er með hita og svona svakalegann að barnið hefur sofið allann daginn nánast af sér og er sofnaður aftur núna. Hann er svo slappur og aumur, er að troða í hann vökva, náði 3 glösum af vatni í dag og svo einum milkshake svo hann er ekki alveg þurr. En sama hvað honum er boðið, nei takk, nei takk heyrist í litla krílinu.
Knús í bili Perla og ofninn hennar
- 28-07-2008 17:10 | 48 visninger | 5 kommentarer
Héðan er svo sem allt gott að frétta. Það er komið grófgólf í baðherbergi og þvottahúsi, hillur í verkstæðið, Steinar hennar D’isu kom hér dagstund og hjálpaði stelpunni og vúla, veggur niður og nú sér maður út á götu í gegn um gaflinn…
En annrs gerist fátt á heimavelli núna. Dagurinn í dag var strandardagur. Þar voru maríuhænurnar líka með strandparty og ég hef aldrei nokkurntíman séð svo margar samankomnar. Við erum að tala um ca 40 50 stk á 30 x 40 cm, gersamlega bilun. Í gær var kl 2030 27 gráður í skugga. Djöfulli næs baa, ef maður hefði nú gesti núna ha. Nei á meðan mamma var hér var svona ca gott veður. Harpa fékk rigningu og ágætis hita svo sem en með rigningu. Nú er hitinn að gera út af við okkur. Í dag hafa drengirnir fengið 4 ísa og örugglega nokkrir eftir á kjaft.
Það er að renna í litlu laugina okkar, eftir að við fórum og keyptum okkur slöngur til að geta gert það á mannlegan máta. Harpa og co þið verðið bara að koma aftur NÚNA.
Annars virðist gestagangur ekki vera búinn. Ægilega skemmtilegt og spennandi. Sýnist að Valur sé að koma bráðum og það verður bara gleði að sjá gamla. Bjarki sagði í morgun, þegar hann fékk fréttirnar, jes, frændi minn er að koma.
Mig langar líka að þakka þeim sem skrifa í gestabók eða koment, það er alltaf gaman fyrir svona forvitnisskjóðu og dýrðardindil sem ég er að sjá hverjir nenna að fylgjast með bullinu í manni. knús ekstra á ykkur.
Jú það verður sett fíntgólf á á föstudag og svo kemur rafvirkinn í næstu viku og áður en hann kemur verð ég að hafa sett upp fleiri lektar.. kann ekki svona smiðafagmál á íslensku en það verður gert þegar Bjarki fer til Tristans á mið eða fim. Það er nýjasti vinurinn og þeir eru svo góðir saman, nema þegar Bjarki er ofurfrekur. Dásamleg tvenna. +
Og annað ég er búin að ákveða hvernig hund við fáum okkur þegar þar að kemur það er hvítur smalahundur líklega á íslensku, þvílík ást sem ég hef nú fengið á þeim kvikindum og svoleiðis verður hundur þessar familu.
svona hundur fer okkur örugglega vel.
knús á línuna Perla
Kommentar
|
|
|
Gestur, 29-07-2008 17:04 Sæl Perla og Bjarki. |
|
|
|
Gestur, 28-07-2008 22:06 hurru góan, mér finnst þetta nú svik við hana Freyju Sól!!!!! Við hlökkum svakalega mikið til að koma í bað hjá þér – láttu vita ef þig vantar manninn aftur. Að vísu er hann búinn í sínu sumarfríi en er nú laus um helgar aðeins kys og kram “að ofan” |
|
|
|
Boozy, 28-07-2008 18:13 Søde hunde |
|
|
|
Confused-Joshua, 28-07-2008 18:01 Freaking færørsk… |
- 09-07-2008 14:27 | 44 visninger | 0 kommentarer
Já bara smá hér, baðið er tilbúið til gólflagningar, vantar reyndar hitann i handklæðaofninn en það kemur ofan á flamingóið svo það er á áætlun. Baðið er hreinsað út og algerlega klárt. Í þvottahúsinu er í augnablikinu 1 til 2 rúmmetrar af mold, sandi og steinum sem þarfnast flutnings, er búin að moka og moka í dag svo það fer að styttast. þegar það er búið þarf að taka panelinn af og allar festingar fyrir rör og rörin, það færi vel að það gerðist á morgun til dæmis.
Það kom hér karl frá gasinu og tók mælinn og sagðist mundi klaga yfir þeirri ósæmandi hegðun sem ég varð fyrir hjá manninum í símanum, hann hefði með það sama átt að bjóða mér mann hingað til að tékka á hlutunum. Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hann heyrði að kúnnarnir væru hraktir í burtu.
Steinar tók svo rækilega til í bílskúrnum hér á sunnudag að ég kannast nú bara ekki við mig þar inni… En mikið er indislegt að horfa til þess að þetta er allt að fara rólega í þá áttina.
Verkstæðið er alveg að verða kalkað og það er svoooooo flott, svo kemur veggfóður þar sem verkfærin munu hanga og hillur í endann þar sem olíutankurinn var. Þá er ég nokkuð sátt bara við allt saman, því þá fer verkdtæðið út úr bílskúrnun og baðherbergið fer nú hvað á hverju, ca 2 – 3 vikur líka að hverfa þaðaðn út.
Ætli ég verði´þá ekki að fara að dytta að bíldruslunni, fyrst það er komið pláss. Það þarf að laga nokkrar skrámur og ljós og setja nýtt loftnet og svona pínu dútl.
Sendi af stað fyrir spurn í gær um málningu á þakið, hvort það væri raunhæfur möguleiki og bíð svars.
Nágranni minn ungi og duglegi er að einagra húsið sitt eins og ég ætla að gera og hann hefur boðist til að kaupa inn fyrir mig, þar sem hann fær hörkuafslátt og það þykir mér vel boðið og ég þakkaði pent fyrir mig.
Annars er kominn tími á að halda áfram, eða fara í sturtu og segja þetta gott í dag, þar til í kvöld, þegar það hefur kólnað pínu.
knús á klakann…. Perla
Líf mitt sem grafa, moldvarpa eða annað jarðtengt.
- 25-06-2008 23:06 | 73 visninger | 0 kommentarer
Það var byrjað með látum, og niðurrif gengu frábærlega.
Þ
Já svo frábærlega að vatnsrörin þoldu ekki hristinginn og létu undan.
Þetta er árangur föstudagsins, ég gersamlega búin í skóflunni og fegin að geta slakað á.
Pínu árangusrmyndir
Þessu var fleygt út þetta mun vera vatnstankur, miðstöð og olíutankur.
Á mánudag leit hlaðið svo svona út… dugleg eða hvað ha
Var ég búin að segja ykkur að við fengum þennann gefins af nmágranna okkar..
Olíutankurinn var þarna í horninu og nú er nýja kyndingin komin á sinn stað og Bjarki voða stoltur.
Voða flinkir og sætir menn sem löguðu lekann í krnanaum sem var meter undir yfirborði.
Þessi fylgir með af því að hann fer ótrúlega ítaugarnar á mér… löng saga og ekki til frasagnar, of þreytt nuna.
Að loknu dagsverki er alltaf gott að slappa af á klóinu.
- 18-06-2008 03:00 | 74 visninger | 1 kommentar
já af körlum mínum frá því síðast er það að frétta að þeir birtust og grófu upp fyrir klóakinu mánudeginum eftir að þeir hurfu hér.. á undanlegan hátt. Skítt með það. Klóakið ætti að vera í lagi núna. Er búin að strípa baðið og það þarf bara að brjóta restina og laga allar leiðslur og rör svo tryggingarnar vilji taka ábyrgð á því springi eitthvað í framtíðinni. Panta færiband á morgun til að ferja ruslið út.
Þeir sem ætla að skipta um miðstöð koma svo á mánudaginn kemur og þá verður aldeilis partý hér. Slökkti á gasinu í dag. fékk reikning upp á 160 þúsund fyrir 4 mánuði, var ekki kát og hringdi. J’u jú þú hefur bara kynt svona mikið í vetur. ALDEILIS EKKI. allir nema ábúendur kvarta undan kulda. Við Bjarki erum svona voða kát en það bara telur sem það telur. Svo eftir að hafa fengið að vita að ég væri heimsk kelling þá fór ég og slökkti á gasinu. Ekki aur í þetta helvíti og hér verður lokað fyrir þetta rugl. Ég fæ mér kút og bisa með hann í frístundum þurfi ég á gasi að halda hér í framtíðinni.
Svo gróf ég til kína í dag úti á hlaðinu og merkilegt, fann lekan hana hér meter ogeitthvað niðri í jörð. Hafi égf einhverntíman efast um sæluvist moldvörpunnar í heimkynnum sínum, hef ég fengið sönnnun hennar núna… hihi. En það ætti að reddast snarlega.
Annars er nú lítið að frétta, moldin frá trampolingreftri fer smám saman hér út í kanta.
Er eiginlega orðin hálf dofin eftir aðgerðarleysi.. haha. En nú glittir í endann á öllu hafaríinu, þegar kyndingin kemur þá kemur nýtt gólf í bað og þvottahús og svo rafmagn og rör og allt það rusl og svo skápar og klósett sem er eins gott að virki og baðkarið sem ég þrái að leggja mig í og sötra vín í og lesa góða bók á meðan ég hálfdotta og vakna upp með sápuvatn í lungunum, dær druknuð í herlegheitunum… Flísarnar ættu svo að hoppa á veggina fljótlega á eftir og vúptí, martröðinni er lokið.
Hann kom hér í dag sérlegur vinur minn frá tryggingunum og sagði mér að þótt ég hefði gengið í gegn um gólfið, bæri þeim ekki að bæta mér það þar sem gamalt og rotið væri. OK og svo að það þyrfti ekki að múra þrátt fyrir að múrinn kæmi niður að innanverðu. Ég er svona í smá vanda með það að trúa karli en mun hafa samband við múrarameistara á næstu vikum til að staðfesta eða neita þessu.
Ég skal reyna að henda inn myndum frá síðustu helgi hér þegar allir komu og gerðu þvílíkt kraftaverk hér með mér. Við vorum 9 og átum okkur mett af lambi á eftir.. Ætli maður geti fengið kjöt af þessum ísbjarnarflækingum, örugglega gott í danskar fríkadellur.
Knús Perla
Ja það er synd að segja að húsráðendur séu atvinnulausir. jesús minn, ég blikna við að lesa þetta allt saman. MMMMMMMM það veit ég að það á eftir að vera algjör snilld að leggjast í baðkarið og máttu nú aldeilis njóta þess vel. Já hlakka til að sjá myndirnar og lesa næsta blogg. Knús og kossar til ykkar Bjarka, Sigga Sif.
- 05-06-2008 00:19 | 92 visninger | 4 kommentarer
Alveg dæmalaust bara, ég hringdi í gær og bar mig illa við tryggingafélagið og sagði vont af klóakmálum hér. Vildi vita stöðu mála og ég hélt áfram þar til dama ein viðkunnanleg bauð mér klóakmeistara að líta á málið. Sem ég þakkaði náðarsamlegast fyrir. Byrjaði frábærlega, þegar ég var að smyrja nestið hans Bjarka koma vaskir menn, tveir að tölu og ganga hraustlega til verks, rífa skálina lausa með höndunum einum saman, losuðu auðvitað um skrúfur og svoleiðis drasl fyrst, hvað hélduði!!! Já já og svo var dröslast með myndavé inn og spáð og spekúlerað. Ég þóttist voða heppin. Nú koma kauðar út og segjast því miður ekki sjá neitt með sinni vél og meistari sjálfur komi og kíki á málin. Þeir fari í annað rétt á meðan og komi svo og brjóti upp eftir meistarans máli og nú á að kippa öllu í liðinn. Enn finnst mér ég vera lukkunnarpamfíll í annað sinn í dag. En tíminn líður og Perlan bíður, meistari hefur eitthvað villst á vegi sínum því ekki hefur hann sést og ég er frekar leið bara. Vonasðist eftir að við mundum nú kippa málum í lag einn, tveir og þrír.
Svo í staðinn hef ég dundað mér í rólegheitum með 1 tonn af hellum. Fyrst lyft þeim upp á vagninn og niður aftur. Og mín bíða 3 tonn í allt, hjá mjög góðu fólki sem vill losna við steinana. Svo fyrir að ég fjarlægi þá fæ ég að eiga skíttið. Er að safna í hlaðið sem eru lauslega reiknað 350 m2 og er orðin lukkulegur eigandi svona ca 30 m2. Safnast saman er saman kemur segir einhversstaðar. Á möguleika á að sækja 50 m2 í víborg ef ég sæki það og tek upp líka, ég ætla aðeins að bíða með að ákveða það, þar sem vagnar í svona þungaflutninga eru ekki á hverju strái og ég svo mikið að flýta mér að ég stend ekki í keyrslu fram og til baka endalaust. Eða þannig.
Það stendur til að fá hingað hörkulið í smá vinnu á laugardag á ég að gefa ykkur sýnishorn af verkefnalistanum?
knús Perlan sem flytur tonn og tonn í senn.
|
haha ég er svo sammála Siggu Sif- maður svitnar bara í gegnum þig þegar maður SITUR á sínum feita rassi og les bloggið þitt…. kræst, þú ert ótrúleg kona, og við VERÐUM AÐ FARA að koma í heimsókn! |
|
|
|
Gestur, 09-06-2008 15:31 þér fyrir hendur. Þvílíkur dugnaður !!!!!! Nú skil ég afhverju forsjónin hefur ekki fengið mig til að kaupa hús sem þarf að gera upp. Hún veit að það myndi aldrei gerast, ég sæti á mínum feita rassi og vælandi og skælandi og ekkert myndi gerast. Já svona er þetta. Hlakka til að heyra framhaldið. Knús og kossar frá Fróni. Sigga Sif. |
|
|
|
Gestur, 09-06-2008 15:29 Hæhæ elsku Perla mín, mér finnst svaka spennandi að fylgjast með framkvæmdunum héðan frá Fróni, ég reyndar fæ smá samviskubit þegar ég ber saman dugnaðinn í þér og síðan einhverja hluti sem ég þarf að gera og nenni ekki og fresta aftur og aftur !!!!!! Ég held að ég þurfi að fá svona verkstjóra eins og þig til að drífa mig áfram. Og þeir hlutir sem ég þarf að gera eru nú bara leikur einn miða við allt það sem þú ert að taka (framh. siggasif) |
|
|
|
OleKai, 06-06-2008 18:48 Kunne man skrive med DANSKE BOGSTAVER? |
- 29-05-2008 11:09 | 74 visninger | 1 kommentar
Já smá upplýsingar, ég hef voða lítið gert, vegna þess að það má ekki hreyfa við miklu. En allavega þá kom maður sem hefur með rör að gera í gær vegna þess að ég hélt að það væri raki í vegg. Hann og ég í sameiningu urðum sammála um að það væri líklega gamall skaði og ekkert við því að gera nú. Jæja við fundum ekki leka þann sem skaðinn hefur á sínum tíma hefur hlotist af. En svo fór hann að rannsaka önnur mál fyrst hann var nú kominn. Þá kom í ljós að þrýstikúturinn á miðstöðinni er ónýtur, þess vegna fylli ég á hann 1 – 2 í mánuði í stað 1 – 2 á ári. Smá munur. Svo sá hann klóakið og staðhæfði að rörin snúa vitlaust.. sem þýðir að þar sem þau koma saman er hætta á að eitthvað festist. Ekki nóg með það þá þarf vatnið að renna upp, sem kannski er stundum erfitt. Jæja ég er nú ekki alveg viss um að þetta sé klóakið sem hann er viss um. Burt frá því þá tékkaði hann þrýsting á vatninu til að vera viss um að það væri ekki leki á kerfinu sem gæti valdið skaða. Og ekkert er að heitavatns sísteminu, en það er leki á því kalda. Nú þarf að finna hann með sérstökum aðferðum sem ég hef afar lítinn skilning á. Og þar eftir að meta hver og hvernig verður staðið að úrbótum. Þá vitið þið það.
Tryggingamaðurinn sem er í klóakinu er voða þreyttur og þegar ég hringdi í hann í gær hafði hann ekkert litið á mín mál. En lofaði að gera það í dag.
Svo hringdi í mig maður frá gasfyrirtækinu og tilkynnti mér að miðstöðin er kolólögleg, ég má ekki keyra á henni því að hún átti að undirgangast skoðun í okt á síðasta ári sem enn hefur ekki fundið stað. Ég sagði að nú væri hún á leið út og hvort þá væri nauðsynlegt að framkvæma þessa skoðun. Við vorum sammála um að það væri ekki nauðsynlegt.
Ég er annars bara í dútli úti í garði. Er að fræsa upp blómabeð og vonast til að geta búið til beð úr ógeðinu sem er í beðunum ef ég blanda það með hestaskít og þannig skít. Ekki furða að blómin séu hálf grisjótt því moldin er hörð sem steinn og hvað vex í svoleiðis undirlagi.
Svo það er af nógu að taka hér sem fyrr.
Já knús héðan ur sól, sumaryl og klóakfýlu. Perla
Sæl elsku Perla mín.
JA hér. En vonandi fer nú eitthvað jáhvætt að ské í húsaviðgerðum hjá þér elsku dúllan mín. Þvílík handvön á öllu sem gert hefur verið, hvað er langt síðan wc var sett upp? Vonandi geturðu skemt þér í garðinum á meðan karlar laga rör sem snúa öfugt og vatn sem vill ekki renna upp í mót. KKK til ykker mamma amma.
- 24-05-2008 23:14 | 80 visninger | 1 kommentar
um leið og ég fæ tækifæri mun ég birta mynd af manninum sem, hlustaði á mig segja frá aðstæðum hér með klóakið og svo til að ýta við honum sagði ég að við færum heldur út í fjós að skíta en gera það hér inni, og hann svaraði að þannig hefði það nú verið í gamla daga. Já kannski sagði ég en ég lifi altso núna ekki fyrir 100 árum síðan. Hann er sem sagt kominn í málið og ætlar að athuga hvort ég eigi rétt á hjálp frá þeim. Yndisleg tilhugsun. Hann ætti að koma í kaffi og fá að skíta úti í fjósi. Bara til að halda öllu til haga um þennan dýrðardindil.
knús frá Perlu sem gengur í hægðum sínum úti í fjósi haha
Hæhæ, Já mín er ekki af baki dottin. Ég leggst með þér á bæn um að þeir tryggingamaðurinn rétti þér hjálparhönd. Þvílíkur dugnaður í þér stelpa. Þú ert alveg ótrúleg. Það er svo gaman að fá að fylgjast með framkvæmdunum. Reyndar finnst mér ég stundum alveg svakalega löt þegar ég er búin að lesa bloggið frá þér!!!!!!!!! Hlakka til að heyra framhaldið. Knússsssss Sigga Sif.
- 24-05-2008 22:45 | 86 visninger | 0 kommentarer
Svona leit baðherbergisveggur einn út í gær
og eftir tæmingu, bras með vinkilslíbarann( eða annað gott orð og smá hnykl leit dæmið svona út
áður en hægt er að opna fyrir vatnið aftur þurfti að fjarlægja hér rör og setja tappa í
allt gekk vel þar til síðasti búturinn áttt að fara af, hann vildi bara ekki, en sög og smá þolinmæði gerði útslagið.
hann gaf sig á endanum og ég er bara frekar stolt af sjálfri mér.
Enginn leki og allt gekk svo ljómandi gott hjá henni mér.
Knús Perla
- 24-05-2008 09:53 | 90 visninger | 2 kommentarer
Já þegar ég var byrjuð að rífa datt mér í hug að taka nokkrar myndir. Þetta eru 3-4 lög af betrekki, og þau losna altso hvert fyrir sig, það er kenning hússins að límið hafi þar eitthvað að segja. Frekar tímafrekt en sjá…
hér er betrekkið farið af
og hér
ca berir veggir bara ykkur til yndis
þá komu nokkrar skemmdir í ljós.. líklega, enginn veit jú, en líklega vatnsskemdir einhverskonar
og fleiri myndir af því
og svo féll einn veggurinn nánast saman ofan á okkur
einhverjar skemmdir eru hér en hvernig þær eru tilkomnar er enn ráðgáta
svona lítur loftið út alveg við ytri vegginn, en mun betur þegar innar dregur
og ég leyfði mér að brjóta eitt bretti úr gólfinu, bara til að sjá , og viti menn sandur. Þá veit ég hvernig vinna bíður mín á skóflunni til að einangra húsið. En ég verð líka sterk sem naut af allri vinnunni.
njótið vel, knús Perla
kommentar
|
|
|
Lessmann, 24-05-2008 21:43 #. Ja det godt du heeeeej. |
|
|
|
Gestur, 24-05-2008 12:20 HÆ HÆ! Elsku Perla mín. Mér synist þú munir hafa nó að gera næstu mánuðina. |
Hver lofað hverjum hverju, hvenær og hvar?
- 15-05-2008 21:15 | 129 visninger | 3 kommentarer
Svona var skógurinn eftir að ég hafði svo lítið tottað í greinar með venjulegum klippum.
Svo varð það ekki nóg..
Stórvirkari verkfæri tóku völdin
Allt í einu varð miklu léttara yfir skógarræksninu
Enda ekki mikill skógur þar sem ruðningur hefur farið fram, svona verður tekið pínu og pínu þar til heila klabbið er horfið og þá verður hægt að planta ávaxtatrjánum langþráðu.
múrsteinarnir frægu
komnir í felur og búið að slá.. dúdda mía
sjáið sæta garðinn minn..
flottu flötina…
fótboltavöllinn frækna
brenninetlur bóndans..
loks við mæðginin í alvöru og leik.
Heil og sæl og nú má kommentera ef einhver nennir.. ok
Annars var svo sem grafið líka í þvottahúsinu í dag komin niður á 40 cm á pínu svæði, hlakka til þegar það verður meirihlutinn, en þar sem ég er búin að fjarlægja múrsteinana og allt það þá er þetta frekar auðvelldari hluti en allt múrsteina hallojsað.
ekkert bólar á tryggingamanni, hann ætti að þurfa að lifa við þetta vesen sjálfur í viku, þá kanski mundi hann drattast í að hringja í steklpuskottið.
knús og kossar úr sólinni . Perla
kommentar
|
Oh, svo dásamlegt Geggjað að sjá breytingarnar og dást að Perlu sinni duglegu og Bjarka sínum ekki minna duglegum Knús í kotið – þið eruð æði. |
|
|
|
Gestur, 15-05-2008 23:40 Jeddúddamía, vá vá vá Getum við ekki sent handrukkara á tryggingarmanninn? kv. Dísa |
|
|
|
Gestur, 15-05-2008 21:26 Sæl elsku Perla mín og Bjarki minn. |
hvernig er hægt að vera svona þreyttur
- 14-05-2008 00:38 | 89 visninger | 0 kommentarer
í dag kom ég inn kl 23 30 kolniðamirkur en ég var í stríði, við brenninetlur og í myrkeinu gátu þær ekki séð mig. Svo að þessu sinni með hrífu að vopni voru þær felldar ein á eftir annari, svo verður lokaslagurinn háður á morgun.
Önnur barátta er skógurinn minn ógurlegi, í kvöld féllu ansi margar greinar, í hálfrökkrinu, undirbúningur undir netluorustuna, felldi ansi gott skarð í þessari flækju sem má svo sem kalla skóg ef það hentar. Þetta eru nú mest bara spírur að reyna að teygja sig eftir sól, dautt hekk, öðrumegin, vegna sólarleysis og rotnuð tré, ætli það sé ekki næsta teiti að slást við hann. Enda hvorki fallegt, né gagnlegt. Mig langar í ávaxtatré.
Garðurinn var karsaklipptur í dag, tók nákvæmlega 2 og 1/2 tíma, trúið því eða trúið ekki.
Hér er unnið frá morgni til kvölds og oft þreytt fólk sem sefur hér í húsinu.
Hugsa að það komi bara myndir á morgun, er frekar sólbrennd og hálf þreytt enda kominn tími á koju núna. En ég lofa að það koma fyrir og eftrir myndir af allavega múrsteina flutningum, sem ég er mjög stolt af að hafa loks fjarlægt, og hver veit nema ég geti monntað mig af fleiru á morgun …
Enginn frá tryggingunum hefur enn hringt og sagts munu koma og hjálpa litlu stelpunni með klóakið, því miður. En nágrannar koma með algerlega gagnslausar athugasemdir þegar vinnutæki garðsins koma að litlu gagni, og komment um hvað á að gera og hvað á ekki að gera. Finnst nú frekar óþægilegt þegar fólk er að gefa algerlega óumbeðin ráð, þegar það hefur ekki sett sig inn í stöðu mála. Bara smá raus hér í restina. hihi
knús og sólarkveðjur heim á frón. Perla.
- 05-05-2008 22:52 | 109 visninger | 0 kommentarer
Eftir heimkomu hefur ekkert verið skráð, vegna mikilla anna. Við höfum verið úti í garði á fullu mæðginin. Garðurinn er að nokkru leiti sleginn, ekki þar sem allt var fullt af greinum samt. Það er búið að hreinsa megnið samt núna.
Múrsteinar hafa flutt sig frá hrúgunni við gfaflinn að hrúgunni við kjallaraopið.
Búið að hringja í sveitarfélagið og reyna að kría út hjálp.
Búið að hringja og fá dagpeningana á sinn stað, hafði ekkert fengið síðan bara í janúar. Búin að hringja og staðfesta viðtal á morgun kl 11 og þá fæ ég kannski vinnu, allavega afleysingu í fiski hér 40 mín frá, nú eða eitthvað annað.
Búið að kaupa garðtraktor og verkfæri í garðinn og meir að segja að nota það.
Svo er búið að tæma bílinn.. það var ekki lítið verk.
Lítil gröftur en alltaf eitthvað pínu, nú er að fara að taka á þar alvarlega, veðrið er bara þannig að það er afar auðvellt að freistast út í stað þess að svitna inni.
Jú og ídag fékk aukaherbergið við baðið ærlegann umgang, veggfóðrið er af einum heilum vegg og næstum af á hinum tveimur.
Allt brennanlega ruslið fór út í dag og brenndist óvart í tunnu á hlaðinu, þá er bara steypubrotin eftir og það klárast þegar restin af veggnum verður hruninn hér eitthvert kvöldið.
Og svo ein mynd sem sýnir glöggt hversu góðir dagarnir eru hér…
haugskítugur strákur sem borðaði jarðarber eins og fífl( hans eigin orð
knús á liðið og takk fyrir síðast, Perla
- 29-03-2008 12:50 | 124 visninger | 3 kommentarer
Já hér koma þær… haha.. nei svo sem ekkert merkilegt annað en að það koma hér myndir af verki fimmtudagsins. Við vorum úti í morgun að taka til í hlaðinu og smá inni í hlöðu, en sonur minn er einstaklega laginn að byggja eitthvað í gangveginum… Núna tók hann tvær dýnur og setti mitt í gangveginn og girti af með gömlu girðingunni frá Trangbækvej . Magnaður. Þá fór ég bara inn að vaska upp og prufa að setja smá í kassa og frá, þá kom hann og vildi vera með. Svo borðaðð hann 2 banana, 2 kívi, 1 epli og fékk svo pínu nammi í tilefni dagsins. Þannig að gerið svo vel að dást að mér og verki mínu….
Her er brotrenna dagsins, upp að wc hurðinni og að skorsteininum, í kring um gamla ketilinn, sem fer út þegar vinir mínir frá Spøttrup koma og setja nýjan fyrir mig.
Skorsteinninn fékk svo sem að finna fyrir því líka.
Hér er smá yfirlitsmynd yfir steina og múrbrot, ekki það ég naut dyggrar aðstoðar tveggja drengja við að fá eitthvað út, en svo kom að því að þeir fengu nóg og fóru að leika sér.
Ég skaust upp á loft að sækja hamar, í leiðinni tók ég bara kvikindið sem stóð og hæddist að mér þarna í hálfrökkrinu. Hann féll eins og sönn hetja. Held að stóru steinarnir séu flestir á burt, kannski leynist eiithvað þarna undir en ji hvað ég er ánægð með að hann er farinn niður.
Sjáiði flotta loftið mitt. í í í í í hí
Bara tekið ofan í holuna, með öllu smotteríinu í kring.
Loft yfirlit henda lausa dótinu út moka lausa ryki og múrbrotum út líka og svo setja upp ramma fyrir einangrun og einangrun, rafvirkinn kemur og svo má ég loka. Þetta hljómar voða auðvellt svona svart á hvítu.
Þá erum við komn niður aftur og skorsteinninn sem þar var er næstum á burt.
Bara múr og rusl, en líka til að hafa heimildirnar á hreinu.
kommentar
|
hva hva hva hva bara ekkert blogg frá Íslandinu góða? kveðjur úr vorinu, |
|
|
|
Gestur, 29-03-2008 13:50 Hæ elsku Perla mín og Bjarki. |
|
|
|
Gestur, 29-03-2008 13:23 jeddúdamía, bara allt í gangi!!?? kv. Dæs í Álaborginni |
- 26-03-2008 21:31 | 130 visninger | 3 kommentarer
einhverjar bjánalegar reglur hér sem segja að titill bloggsins verði að vera ákveðið langur…. svo nú er að nota orðaforðann til hins ítrasta eins og ég reyni í dag!
Annars ætlaði ég bara að leggja inn myndir af verki gærdagsins. Niðvikudagar eru alltaf ónýtir dagar hjá mér svo ég gerði ekkert í dag. Hæst ánægð með mig og mína. Bjarki er bara svo mikill gullmoli, þrátt fyrir allt.
Eðal palenderenn af, það gengur sem og í sögu, enda engin binding, bara spurning um að finna horn og jugga og vúptí platan fellur af.
Hér er hola og pínu gröftur niður í hana.
Meira af fallegum veggjum…
Þetta mundi vera af glugganum þegar frábæra klæðningin féll af þegar ég andaði á hana. Haha
Þetta er uppi í hornio við útihurðina, ætlaði að sýna ykkur vefinn sem er þarna en hann myndast illa í dag svo kannski seinna.
Niuðri í horni vcið hurðin a, bara smá sýnishorn.
Hinumegin við hurðina haha.
Hrúga af mokstri, við vorum orðin löt í gær og strákarnir vildu inn, ég mokaði bara í tvær hrúgur og svo voru rekur, hrífur og bílar á fullri ferð næstu tímana. Mæli með aðferðinni inn í stoifu ef ungarnir eru erfiðir vegna þess að hún virkar vel.
Yfirlitsmynd yfir rusl og drasl, ryk og drullu.
Auðvitað tekin hinumegin frá, dásamlegt.
holumynd
Það þarf ekki að taka fram að hér inni liggur þykkt lag af dásamlegu ryki yfir öllu. Maður er með sand í augunum, allt er þurrt og eins og sandpappír viðkomu, meir að segja hendur og varir, maður þorir elli að ulla þá er eins og maður sé að sleikja sandpappír ef tungan kemure við varirnar. Hehe bara gaman af þessi ekki satt.
kveðjur á kotungana… Perla
kommentar
|
|
Camomilla, 28-03-2008 22:15 dslocbkl chmlvhmnkvhdnfhbvnjskjflshkblfihnjevgn u ubwitygbh |
|
|
|
Gestur, 27-03-2008 11:31 hæhæ, þið eruð ekkert smá dugleg. Rosalega er gaman að fá að fylgjast með ykkur og framkvæmdunum, maður er farin að bíða spenntur eftir hvað gerist næst. Já þetta hlýtur að vera draumur drengjanna að vera þarna í dótinu. |
|
|
|
Gestur, 27-03-2008 00:47 Guð hvað þið eruð dugleg!!!! Þú ert svo mikið hörkukvendi Perla mín. |
- 25-03-2008 21:03 | 97 visninger | 0 kommentarer
í þvottahúsinu. Nú er byrjað að brjóta gólf á fullu. Mér tókst á undraverðan hátt að brjóta meitilinn í hamrinum… spurjið mig ekki hvernig samt. En nú er komin hola upp á ca 1 m2 og þar eru rör og leiðslur undir svo verkið vannst hægt í dag. En á morgun þyrfti ég að hjálpa ísskápnum að flýja rýmið og þá fyrst verður sett í 5 gír eða þannig.
Þessar fréttir voru í boði meitilsins. Bestu kveðjur Perlan
- 20-03-2008 18:31 | 120 visninger | 1 kommentar
það var ekki svo mikið gert í dag að vert sé að monnta sig. Þess vegna monnta ég mig bara af blómunum sem eru hér ó kring um mig. Nú spá þeir fræðingarnir snjó hér á páskum. Allir væla nema við vitleysingarnir.
Það sem var gert í dag var að henda restinni af steinunum út og moka í nokkrar fötur, rykið er bara svo agalega fínt og treður sér í allar svitaholur, spurning um að væta aðeins í þessu bara og af stað aftur…
Þessar liljur eru í potti hér úti..
svo er nú hægt að monnta sig endalaust af honum þessum…
alger hlaupagikkur.
bless i bili, Perla
Ég finn kuldann hríslast um beinin og er miður mín, enda var ég komin í vorfílingin!
Hlakka til að sjá þig um páskana hon
kv. Álaborgar-gengið
við gerum alltaf eitthvað pínu
- 18-03-2008 14:27 | 100 visninger | 1 kommentar
Þetta er afleiðing niðurbrotsins, skorsteinninn er kominn í gólfhæð.
Er einhver sem gerir sér grein fyrir hversu margir múrsteinar eru í einum andskotans skorsteini. Þar fyrir utan fyllist allt af ryki og sóti, en við höfum tekið 8 fötur af því niður og munum halda ótrauð áfram.
Yfirlitsmynd af loftinu, með rusli og kössum og mublum, sem eru á leið niður.
Bara önnur yfirlitsmynd, svo ég geti klappað mér á öxlina þegar ruslið verður komið niður af loftinu.
Mynd af næsta fórnarlambi, skorsteinn múmer tvö… hann skelfur við tilhugsunina, en hann er ekki til gagns eða prýði svo hann fellur.
Bara af múrsteinum og ryki, megnið er komið út en mikið eftir þó.
Bjarki með verkfærakassann sinn.
Já frekar stoltur eigandi
Það þarf aðeins að fikta.. málið er að það þarf að taka hann af þakinu líka þennann, ég bara er ekki alveg viss um verklagið á svoleiðis framkvæmdum, ætlaði að gá hvort hann héldi, en er að gugna á því..
Aftur af ryki og mússteinum.
já og ef einhvern langar að gista, hér er svefnsófi, hrikalega góður…
Frábært útsýni þegar strompurinn er horfinn, mig hlakkar mikið til að sýna ykkur myndir þegar einangrunin verður komin upp og nýju bitarnir og klæðningin, ég get bara varla beðið.
Enn ein tekin fra tröppunum og inn í rýmið.
Við höfum sum sé baksað við að fjarlægja vegsummerki í dag. Ég sló einhvernvegin án þess að slá mig í gær og er í erfiðleikum með aðra hendina þar sem fingurnir vilja ekki hreifa sig án verkja, en það hlýtur að jefna sig með aðeins meiri vinnu. Bjarki er líka á fullu, með verkfærakassann sinn og tékkar á halla á sperrum og hamrar þar sem þess þarf, hann mokar í fötur og hendir múrsteinum út. Færir mömmu sinni kassa sem eiga að fara af loftinu. Alveg dásamlegt vinnudýr, sem er svo gaman að vnna með. Það koma hinar ýmsu hugmyndir og þetta er svo gaman.
Hvenær koma hin vinnudýrin í heimsókn??
Bestu kveðjur og munið að halda snjónum þar til við Bjarki höfum fengið að njóta hans.
Perla
Sæl elsku Perla mín og Bjarki minn.
Mikið klakka ég til að fá ykkur í heimsókn.
Ég taldi ekki múrsteinana þegar ég braut minn stromp en þeir eru margir. Það munar miklu að vera með vinnustrák.
KKK. mamma amma
Nú fer lestin af stað, á fullu ferðinni
- 12-03-2008 12:01 | 95 visninger | 0 kommentarer
Já nú er loksins farið að starta lestinni sem ætlar að leiða mig ígegn um þessar breytingar á húsinu.
Í gær kom rafvirkinn og lagði þær línur sem hann þarf að vinna með, ekki nóg með það hann kíkti upp á loftið og hreinlega gaf mér flottasta, ódýrasta og öruggasta ráðið til að flytja hanabitana. Að kaupa efni sem heiti….. eitthvað sem ég man ekki …. en anyhow, þá eru það bitar sem eru 15×5 cm og þeir sagast í sama halla og sperrurnar og verða síðan negldir, skrúfaðir eða saumaðir fastir ofar á bitana, þá get ég fjarlægt hina. Þetta eru tveir bitar fyrir hvert hanaband og svo getur maður leikið sér með lýsingu og háloft á þeim þar sem þeir eru sterkir.
maður frá sp0ttrup og gerði mér stórkostlegt tilboð í kyndingu sem með öllu mun kosta mig 89 þúsund danskar, en það er með vinnu og moms, svo það er vel sloppið þetta er það sem aðrir hafa boðið og þá átti eftir að setja ofaní skattinn og vantaði helling á vinnuna, td rafmagn og steypuvinnu. Hann samþykkti að ég ynni alla grófvinnu og svo tækju þeir við’, sem er nú annað en kallinn sem kom um daginn, og það að auki ef mig vantaði verkfæri til að vinna með mætti ég hafa samband við hann, hann mundi lána mér þau svo grófvinnan gengi betur.
Ég þarf núna að tæma innganginn okkar og loka honum, þá get ég byrjað að grafa, brjóta og berja eins og mig lystir.
Ég þarf að fara 40 cm niður og svo koma þeir og leggja rörin, þá má ég einangra og leggja reo net þá koma þeirog leggja gólfhitann held ég og svo er að loka ruslinu og setja baðherbergisinnyflin inn, og finisera með flísum, ljósum og skápum. Ég er nú alveg í skýjunum að þetta gangi nú svona allt í einu eins og smurð vél.
Allir vinnumennirnir þurfa 3-4 daga til að koma sér hiongað, með réttu tólon og tengingarnar svo þegar ég er að verða búin þá hringi ég eftir þeim og það tekur ca 3 daga að gera vinnuna þeirra. Enn hvað ég er hamingjusöm í dag.
Knús Perla
- 10-03-2008 01:16 | 104 visninger | 0 kommentarer
…nei nei ekki íorðsins fyllstu, en ámeðan baðið er ípásu er ég að ryðja einum skorsteini úr veginum hér á loftinu. Ætli hann rjúki ekki niður á morgun, ef allt gengur eftir áætlun. Þarf með Bjarka til tannlæknis og kannski læknis, hann datt eða fékk eitthvað í vörina og jún er svo bólgin og blá og ég vil bara vera viss um að hann sé ekki brotinn eða eitthvað. Það má ekki snýta honum eða koma við framtennurnar. Þetta var nú það sem var að frétta héðan í dag. Knús verkefnafúsa Perla
- 29-02-2008 10:30 | 91 visninger | 0 kommentarer
Ég ætlaði nú ekki að hafa hér annað en húsrif og uppbyggingu en nú bara verð ég að segja frá. Þannig er að Bjarki er hjá fjölskyldu, eina helgi í mánuði og tvo miðvikudaga. Það hefur gengið ágætlega, auðvitað erum við ekki alltaf sammála um allt en mér var heldur betur brugðið í morgun. Ég hringdi til að fá að tala við kommúnuna, þeas um hvernig fyrirkomulagði með svona helgarbörn mundi vera almennt. Því það hefur verið smá ósamkomulag undanfarið og þau hafa bara sent sms og ég á að sækja Bjarka. Ég er að vonum ekki alveg sátt við þetta fyrirkomulag þar sem mér finnast þau vera að kvarta undan smámunum og því sem upp á kemur hjá öllum. Þá segir konan í kommúnunni mér að þau hafi sagt upp samningnum, vegna þess að þau séu með annað barn og þeim komi nú ekki alveg nógu vel saman Bjarka og honum. Bjarki krefst meira og meira af þeim. Að auki sé ég áhugalaus um barnið mitt, hann sé sem fullorðin einstaklingur í mínum augum og axli ábyrgð sem slíkur. Þar af leiðandi þegar þau setja reglur sé hann ekki til í að hlýða.
Ég er gersamlega miður mín, hvað er eiginlega að. Bjarki krefst meira ef ég hef gesti, hvað þá ef ég fengi annað barn sem alltaf væri hér, hann er vanur að vera þarna sem blóm í eggi og allt í einu ryðst inn drengur sem ruglar hans veröld hjá þeim. Hann verður erfiður og þau geta ekki höndlað það. En hvernig þau fá út að ég hafi ekki áhuga eða tíma fyrir barnið mitt er mér algerlega óskiljanlegt.
Ég hef í hyggju að tala við mína konu hjá kommúnunni 10 mars og þá ætla ég að biðja um fund með þessum helgarforeldrum og ég vil gjarnan fá rökstuðning fyrir þessum ásökunum, sem mér finnst þetta vera. Ég vil að kommúnukonan verði með því annars yrði þetta ásakanir frá okkur báðum, ég í bullandi vörn og þau rakka mig niður.
Skil heldur ekki af hverju helgarforeldrarnir höfðu ekki samband við mig og sögðu að þeim þætti samstarfið ekki nógu gott. Ég kem bara algerlega af fjöllum.
Við búum í sama litla bæjarfélaginu, erum með börn í sama leikskóla, verslum hjá sama kaupmanni, við munum næstum örugglega hittast, frekar oft. Þar sem möguleikar okkar eru hinir sömu í þessu bæjarfélagi til að sækja þá þjónustu sem þar er.
Nóg um það er farin að gera eitthvað skemmtilegt, rífa eitthvað niður helst…
knús á línuna. Perla
Smá meira slúður…. nágrannakona mín sem vinnur sem dagmamma eins og helgarfj0lskyldumamman, skemmtileg kynni þetta af nýja íbúanum í nörre rind ha, jæja hún segir mér að hún sé búin að vera að hugsa og henni finnist réttast að segja mér að Benta sem er Helgarmamma Bjarka sé að slúðra um mig. Nágranninn þekkir Bentu ekki neitt en hefur eftir 3ja aðila að ég sendi Bjarka títt og oft af stað veikan. Barnið mitt er nú bara voða sjaldan veikt. Ég fór til dagmömmunar hans gömlu og spurði hvernig hún mundi lýsa okkur og hún gapti bara. Leikskólinn sagði að þau mundu standa 100 % á bak við mig, hann væri nú bara ekki mikið veikur og ef hann er þá er honum haldið heima við.
´Jæja haldiði að þetta sé allt, nei, ó nei, ég tek heldur ekki símann þegar þau hringja, en ef þau taka síma dótturinnar þá svara ég. Fyrst af öllu þá er ég svo forvitin að ég svara símanum, þau hringja með númeraleynd og ég get þess vegna ekki vitað að þau séu að hringja, get hedur ekki hringt í þau í hvert sinn sem númeraleynd hringir í mig. Vaninn er nú að samskiptin fara fram á sms um svo ég skil ekki vndamálið. Annað er jú að sé ég nú í baði, þá tek ég ekki símann og það þriðja er að ef ég sé númeraleynd og Bjarki er hjá þeim tek ég umsvifalaust símann, það gæti jú verið alvarlegt.
Konuræfillinn ásakar mig fyrir vanrækslu á syni mínum og henni ber skilyrðislaust að tilkynna mig hafi hún slíkar grunsemdir, það hefur hún þó ekki gert, og svo er þetta brot á þagnnarskyldunni sem hvílir á samningnum. Kannski hef ég nú brotið hana líka hér og nú en það skilur hvort sem er enginn þetta hrognamál.
að kemur hingað koma frá kommúnunni á morgun og við ræðum málin, finnum aðra fjölskyldu og ég bið um lokafund með þeim til að gefa þeim tækifæri til að rökstyðja þessar ásakanir. Er nokkuð kúl á því bara ennþá. Er samt reið og finnst ég órétti beitt.+
Knús Perla
baðherbergið tekur smá breytingum
- 20-02-2008 10:23 | 114 visninger | 2 kommentarer
Jæja þá er ég að hugsa um að sýna ykkur hver árangurinn af niðurrifum hingað til er orðinn. Er ekki enn búin að gefa mér tíma í að læra á albúmin, en þegar þar að kemur þá getið þið vonandi skoðað allt þar undir í stað þess að vera að fletta blogga á milli. Er búin að panta kamar, sem verður í hlaðinu og þegar hann kemur, byrjar fjörið. Þá verður allt mölvað mélinu minna og þá fer uppbyggingin líka að geta byrjað. Jæja gerið svo vel.
Já svona ca litu veggirnir út þegar betrekkið var farið af, þurfti að skraba þetta af og útkoman verður þá svona
Allt miklu betra og fallegra.
Þar sem flísarnar voru múraðar á veggin urðu þessir fallegu klesstu múrlistaverk eftir á veggnum þegar flísarnar hrundu af.
En eftir smá hamagang og læti þá verður veggurinn svona sléttur. Er nú ekki búin með þessar dásamlegu breytingar á veggnum. Hugsa ég láti þær bara bíða þar til kamarinn verður kominn hér í hlað. Nenni ekki þessu rykdrulluverki þegar ég þarf að þrífa eftir mig á hverjum degi. Segi við sjálfa mig að þegar höfum kamarinn hér utan við þá get ég bara bviðrotið bramlað og pússað og snyrt og svo lokað á eftir mér. Farið í bað í ferðabaðinu okkar og setið á hreinu klósetti ef þannig vill til. Svo nú eru bara rólegheit þar til herlegheitin birtast. Ætti að vera uþb vika í kassann.
Já þetta mundi vera veggurinn við vaskinn ef einhver ekki áttar sig á mér.
Og hér er dollan dásamlega.
Þá er ég allavega búin að gefa skýrslu um þennann áfanga.
Lifið heil.
kommentar
|
Vá skvís! Þetta verður geggjað kv. Dísa skvísa |
|
|
|
LiamxDualt, 20-02-2008 14:10 Forstår jo intet at det du skriver |
- 20-02-2008 10:08 | 76 visninger | 0 kommentarer
Við fengum heimsókn í síðustu viku. Fjórfættir vinir okkar bjuggu hér og gerðu sér lítið fyrir og létu eins og þeir ættu herlegheitin. Allir í sama rúmi og voða kósý.
- 09-02-2008 07:43 | 109 visninger | 1 kommentar
Hér innandyra gerist nú ekki mikið, þar sem veðrið lokkar mig út. Er að grisja í “skóginum”, rotin tré sem brotna þegar ég lít á þau. Stóru trén hér á flötinni sem fara ótrúlega í taugarnar á mer. Ætti nú að hundskast út með myndavélina og taka myndir fyrir þetta blogg. Geri það seinna í dag. Ótrúlega gaman að sjá vorlaukana sem eru að stinga sér hver á fætur öðrum hér upp úr laufferginu. Hef séð vetrargosa, krókusa og tété páskaliljur enn sem komið er.
Uppi á háalofti eru margir gamlir svartir pottar, ætti að truntast upp stigann sækja þá og gróðursetja laukana sem ég á í fötu inni í bílskúr, gæti verið að það kæmi eitthvað spennandi út úr því. Ekki vegna þess að það er takmarkað plássið í garðinum, en ég er að reyna að vera skynsöm!!! haha. Jú ég veit ekki enn hvað kemur hér upp undan vetri. Gæti vel verið að það sé eitthvað sem kerlingunni líkar. Svo nú fer allt í potta og ég get skrásett garðinn Eftir því sem upp kemur. Sem betur fer er nú ekki neitt risa beð, og mín áætlun hljómar upp á hvít, blá og rauð blóm. Liljur og nothæf blóm og tré eða runna. Á næstu 14 árum verður hér sett niður eftir því sem veðráttan hér býður upp á… ávaxtatré og runnar með ætum berjum, rabarbari og þannig. Svo verður haldin uppskeruhátíð í garðinum. Veit velað ég kem ekki til að borða allt góðgætið, en þegar maður getur haft perutré í garðinum hversvegna þá hafa hangibirki? En það er svo bara mín skoðun á málinu. Við mæðginin eigum nú eftir að kíkja út þegar birtan fer að laumast inn í garðinn og þá tek ég myndir af núverandi ásigkomulagi garðsins. En ekki vænta stórbreytinga þar á næstunni, garðurinn er langtímaverkefni, þar sem ég get ekki verið í baðherbergi að brjóta niður og að fella tré samtímis, því miður
Góðar stundir.
Hæ skvís
Hér er alltaf gaman að koma, svooo mikið að gera hjá þér.
Hlakka til að fá myndir af baðherberginu, og garðinum.
kys og kram
Dísa & gengið
- 06-02-2008 23:48 | 91 visninger | 0 kommentarer
Það fer óstjórnlega í taugarnar á ungum dönskum bloggurum að þeir skilja ekki orð af því sem ég skrifa, þess vegna má ég til með að skrifa aðeins meira á mínu ástkæra ylhýra. Merkilegur andskoti að trúa því að það sem maður sjálfur ekki skilur, skilji enginn. En ég hef nú ótrúlega gaman af því hvað ég fer í taugarnar á þeim. Eða að gera sér ekki grein fyrir því að þótt maður sé í Danmörku og noti danskan hýsi þá getur fólk allstaðar í heiminum opnað síðuna og lesið sér til um hugrenningar mínar, þótt þær séu á mínu móðurmáli og gæti jú skilist af nokkrum hræðum, sem mögulega gera sér það ómak að býsnast í gegnum, annars ótrúlega óskiljanlegar blogghugleiðingar mínar. Ha ha ha. Knús á alla sem skilja mitt annars merkilega tungumál.
- 06-02-2008 21:39 | 132 visninger | 2 kommentarer
Ég hef heyrt að það sé ekki hægt að skrifa tillögur, tilmæli eða annað í þeim dúr, nema maður hafi sjálfur skráð netskrif hér á þessum miðli, og þess vegna, gestum mínum til yndisauka og ánægju hef ég búið til gestanafn. Það er auðvitað Gestur og aðgangslykillinn er perlan. Þannig að ef þið bara skrifið nafn undir þá veit ég hvaðan skilaboðin eru. Þetta þykir mér vera voðalega vel gert af mér og mér sjálfri vonandi til mikillar gleði og ánægju, sem og ykkur. Nú er ekkert að vanbúnaði að segja skoðun sína eða álit.
Set með eina mynd af snillingnum mínum.
Knús á línuna.
kommentar
|
|
Ditlevsen, 06-02-2008 22:56 prøv lige at skrive så man kna læse det !! |
|
|
|
little-person, 06-02-2008 22:14 jaja, kan bare ikk se hvorfor, du skriver noget som ingen fatter alligevel. så kan du jo lige så godt fortælle det til dig selv ikk ? ja fuck det, kan lige være skide ligeglad med det, sys bare det er noget underligt noget!! |
- 06-02-2008 02:30 | 132 visninger | 5 kommentarer
Þar sem í öllu skipulagi mínu, hafa myndirnar af baðinu eins og það var áður en ég byrjaði að hefla af því, skipulagt sig þannig að ég get ekki fundið þær. Einungis tímabundið vandamál en til að gera eitthvað ákvað ég þá í staðin að sýna ykkur myndir af kofaskrípinu utanverðu og kannski kmur skipulagið þá til að virka ef ég gleymi að ég er að leita að akkúrat ákveðnum myndum. Njótið vel.
Þetta er húsið, séð frá gaflinum og billinn stendur fyrir utan bílskúrinn.
Annað sjónarhorn á kofann.
Þetta er fyrrum gripahús, sem geymdi, grísi, kálfa og hænsn.
Þetta mundi vera hlaðan.
Og bílskúrinn. Þar með er hringnum lokað.
Þetta er nú það sem við búum í í dag. Mikil ánægja hjá okkur báðum að vera komin í okkar eigið hús. Hér má maður næstum allt! Bjarki er duglegur að dunda sér, enda nóg að dunda sér við. Td um daginn fann hann aldargamalt reipi, batt það um toppinn á jólatrénu. Sem alls ekki mátti henda, hann vildi helst fá það inn í herbergi til sín, en sættist á að setja það út í hlöðu. Já batt um toppinn, fékk svo mig til að kasta yfir bjálka og saman hífðum við það svo langt nú sem greinin komst. Þar hangir tréð enn og hefur fengið prik og greinar sér til samlætis svona þar semþær fást til að hanga í reipinu. Þetta tók nú töluverða stund þar sem það þurfti að greiða úr flækju til að ná eina reipinu sem gæti dugað í aðgerð sem þessa. Á meðan náði ég júað gera helling af því sem ég ætlaði mér. Það var að flokka rusl, safna á einn stað því sem ekki átti að henda en þarf að flikka upp á, og setja það sem á að eiga á viðeigandi stað. Þetta lukkaðist allt með ágætum og við vorum ánægð og kát þegar við fórum í afmæli sunnudagsmiðdegi, svöng og fengum fullt af góðgæti.
Hafið það gott allir og legist nú á bæn svo við fáum einhvern skerf af snjónum sem er heima.
kommentar
|
|
|
Gestur, 11-02-2008 15:32 Öfunda ykkur mikið Sé allveg fullt af mögileikum sem þú getur gert dúlla. Eitt verð ég að biðja þíg að gera fyrir mig. Það er að setja fullt af ljósaseríum í portið Sé það allveg fyrir mér hvað það væri kósý Kveðja Kata |
|
|
|
Gestur, 07-02-2008 17:59 Sæl Perla mín.Okkur Val fynst síðan mjög flott. |
|
|
|
little-person, 06-02-2008 18:30 det var så lidt, men forstår bare ikk hvorfor man er på en dansk side og så skriver et andet sprog, ? ja det er bare min mening . tak du må d også have en go dag ,.. |
|
|
|
Fuzia, 06-02-2008 13:15 Troede det var en dansk blog, og kan slet ikke finde ud af hvad der sker her xD? |
|
|
|
Siggasif, 06-02-2008 11:31 Þetta er nú ekkert nein smá hús. Það er ég hrædd um að minn maður myndi öfunda þig af öllu þessu húsnæði sem þú hefur. Þetta er alveg geggjað, hlakka til að sjá fleiri myndir, inni myndir líka. kv. Sigga Sif |
- 03-02-2008 13:05 | 124 visninger | 1 kommentar
Ja hérna þá er að ráðast í að segja frá baðherbergisframkvæmdum og setja svo nokkrar myndir með. Baðið er frekar gamaldags og frekar skítugt að innræti. Ekki mikið hægt að gera vegna aldurs og fyrri starfa. Hér hafði jú búið gamall maður á 83 aldursári og hann hefur, vel að skilja, meiri áhuga á landbúnaðartækjum, ónothæfum þess vegna en hreingerningu. Enga hafði hann húshjálpina og miðað við skítinn í gripahúsunum er þetta jú bara smotterí og bara fyrir tuskuóðar kerlingar að vera að fetta fingur í það. EN allavega þá er líka K2 í baðherberginu, sem þýðir að þar er skaði sem verður að bæta ellegar getur farið svo að skaðinn fari að breiða sér og valda frekari skemmdum á kofaskrípinu.
Herbergið er 7 m2 og lagt flísum að mestu leiti. Einungis 50 60 cm kafli niður við loft er lagður eðal veggfóðri, einstaklega smart og í klikkuðum lit! Einn gluggi er í rýminu og tvær hurðar, til að auðvellda snaran aðgang að þessu mikilvæga herbergi.
Þarna inni voru og eru, klósett, rúlluhaldari, lítil hilla, sem einusinni var hvít en er núna grágul, sturtuaðstaða með hengi, 7 krókar út um allt fyrir alls konar snúruverk, vaskur spegill, eitt ljós, gamall skápur með hillum og svo steyptur stubbur til að setja þvottavél á.
Nákvæmlega ein innstunga til að setja þvottavélina í, svona fast og ljósarofinn er utanáliggjandi við báðar hurðir.
Er að hugsa um að láta myndirnar tala fyrir sig og skýra þær bad 1 bad2 og svo framvegis þar til ég hef náð hringnum !! Myndirnar koma örskömmu síðar.
Hér býð ég inn á baðið.Takið sérstaklega eftir þessum einstaklega smarta vaski, þrátt fyrir að hafa séð betri daga, þjónar hann dyggilega og nýtist til handþvotta. Verst hann verður ekkert skárri sama hvað maður vaskar hendur oft í honum. Já og forláta skápurinn á veggnum, hefur eflaust verið voða fínn þarna í denn… mundi ekki geyma rottu í honum.
Einstakt klósett, maður svífur sem á skýi…. Takið eftir mjög svo hvítum flísum í kring.
Komin í hornið, dyrnar liggja inn í meyjarskemmuna.
Gluggagarmurinn er þarna, svo óþéttur að vindurinn lætur sér ekkert muna um að lofta út þrátt fyrir að glugginn sé eftir minni meiningu lokaður.
Sturtan sem enginn ætti að skammast sín fyrir. Hún virkar. Er það ekki málið, bara að reka sig ekki utan í neitt á leið út, aldrei að vita hvort maður þyrfti í bað aftur.
Já bara aftur til ámynnignar!
Meira til að sýna flísarnar. Hef gert ótal tilraunir, á bara eftir að prófa sprengju…
Hér stóð þvottavél gamla mannsins, ekkert meir um það að segja.
Niðurfall sem hefur þjónað dyggilega, fer brátt á eftirlaun.
Já þetta eru myndirnar af baðinu eins og það var. Velbekomme.
- 03-02-2008 11:28 | 130 visninger | 1 kommentar
jæja þá er snúran fundin sem tengir saman myndavél og tölvu, og getur þá atburðarrásin farið af stað hér. Eins og allir sem þekkja mig vita þá er ég rólegheitamanneskja og er ekkert að flýta mér! Það er ekki margt í gangi hér frekar en venjulega !!!
Er að hugsa um að kynna ykkur fyrir framkvæmdum gærdagsins. Við búum í kofa sem líkist byggingarstað og mikið er rætt en minna framkvæmt. Þegar tilvonandi meyjarskemma heimilisins var tæmd af kössum og kynstrum varð eldhúsið fullt af allskonar hlutum, sem ekki eiga þar heima og var erfitt að ferðast og vera þar fyrir þrengslum. Hvað þá þegar mig langaði að þrífa gólfið. Svo segir Bjarki í gær, endurtekning móðurinnar, jæja mamma má ég þrífa eldhúsgólfið? Sjálfsagt mál, ég fór að tæma eldhúsið og af miklum krafti tókst að gera gólfið hæft til hreinsunar. Við vopnuðumst fötu með sápuvatni, svömpum og burstum. Byrjuðum af miklum hug og skúruðum og skrúbbuðum. Mitt í framkvæmdunum byrjuðu óvæntir hlutir að gerast og 7 mínútum síðar hafði gólfið skipt um lit, frá brúnu, frekar illa til reika og ógerningur að þrífa, í grængult miklu betra gólf.
- 20-01-2008 10:34 | 179 visninger | 0 kommentarer
kemur þetta fram einhversstaðar ha? Það væri gaman að sjá það, og þá getur þetta fariðað keyra allt saman með myndum og smokkrum ( smá og nokkrum) orðum